Fjölskyldufyrirtæki síðan 1953

Efnalaugin Björg er ein elsta starfandi efnalaug hér á landi. Hún hefur verið starfrækt í ein 66 ár og alltaf í eigu sömu fjölskyldunnar.

Frumkvöðullinn, Magnús Kristinsson fæddist 13.október 1923 í Vestmannaeyjum þar sem hann var búsettur framan af. Árið 1940 fór Magnús til Reykjavíkur til að læra að hreinsa fatnað og á árunum 1941-1942 byggði hann ásamt yfirmanni sínum efnalaug sem staðsett var við Skólaveg í Vestmannaeyjum þar sem hann var síðan verkstjóri í 2 ár.

Hann fluttist síðan til Reykjavíkur og vann í fatahreinsun þar til hann keypti sína eigin efnalaug þann 1.október 1953, Efnalaugina Björg við Sólvallagötu 74. Á sama tíma var opnað útibú í Barmahlíð 6 sem starfrækt var í nokkur ár. Á Sólvallagötu var efnalaugin fram til ársins 1967 en þá fluttist hún að Háaleitisbraut 58-60 þar sem hún er enn til húsa. Það var svo ekki fyrr en árið 1987 að bættist við starfssemina þegar opnað var við Álfabakka í Mjódd.

Í gegnum árin hefur Efnalaugin Björg haft það að megin stefnu að vanda vel til verka, veita góða þjónustu og vera með nýjustu vélar, tæki og efni á markaðnum.

Til að uppfylla þessa stefnu hefur mikil áhersla verið lögð á þjálfun og í því skyni hafa starfsmenn og eigendur sótt fjölmörg námskeið erlendis til að auka þekkingu sína.

Auk þessa er persónuleg samskipti ávallt höfð að leiðarljósi og reynt er eftir bestu getu að koma til móts við þarfir viðskiptavinarins t.d. með sveigjanlegum opnunartíma og flýtimeðhöndlun þegar svo ber undir. Fyrirtækið hefur almennt gott orðspor og er þekkt fyrir góð vinnubrögð.

Mikið er leitað til þess með ýmiss vandamál og svara þeir fjölmörgum fyrirspurnum símleiðis um bletta-hreinsun. (Traust fagmennska í fyrirrúmi). Efnalaugin Björg tekur einnig á móti þvotti og þar sem áherslur hafa breyst og fleiri gistiheimili og hótel eru að bætast við þá fórum við að flytja inn vörur frá Zollner í þýskalandi sem hafa sérhæft sig í Líni fyrir hótel og gistiheimili í um 100 ár.

Við erum ekki að finna upp hjólið og bjóðum þess vegna upp á vörurnar frá Zollner því að við höfum verið í hreinsun og þvotti í 66 ár og þar af leiðandi veljum við þær vörur inn til okkar í sölu sem við treystum, vitum að eru í lagi og standast okkar kröfur. Við gerum þvottaprufur á öllum þeim vörum sem við seljum og hingað til hefur allt staðist hvað varðar merkingar og uppl.sem Zollner gefur upp.